Athugið: ef þú ert að lenda í einhverjum vandræðum, eða ert með spurningu varðandi streymið er nauðsynlegt að hafa samband við það fyrirtæki sem veitir þér streymið – við getum ekki veitt neina aðstoð vegna myndlykla Símans eða Vodafone, vegna tix.is eða NovaTV. Smelltu á hlekkina til að hafa samband við þau beint.
Þú getur einingus keypt aðgang beint í myndlyklinum þínum, með fjarstýringunni.
Svona gerir þú það:
Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum tímaflakk í myndlyklum Símans í 48 klst eftir tónleika. Eftir 48 klst er hægt að kaupa aðgang að tónleikunum í gegnum myndlykilinn, á fullu verði.
Best er að nota myndlykilinn þinn en einnig er hægt að horfa á tónleikana með Síminn appinu.
Þú getur ekki fært kóða á milli notenda eftir hann hefur verið virkjaður í myndlykli Símans, en þú getur farið með þinn myndlykil á annan stað (t.d. upp í bústað), tengt hann við sjónvarpið og notað hann þar. Kóðinn virkar bæði á aðallykil og aukalykla hvers notanda.
Já, tónleikarnir verða aðgengilegir á tímaflakki um leið og þeir byrja og þar er hægt að spóla og pása að vild.
Einungis er hægt að kauða miða beint í myndlyklinum og í Stöð 2 appinu.
Svona gerir þú það í myndlyklinum:
Svona gerir þú það í Stöð 2 appinu:
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Já, þú getur horft á tónleikana í Stöð 2 appinu. Ef þú ert ekki með myndlykil þá fara kaupin fram í gegnum vefsjónvarp Stöðvar 2.
Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum tímaflakk Vodafone í 48 klst eftir tónleika. Eftir 48 klst er hægt að kaupa aðgang að tónleikunum í gegnum myndlykilinn, á fullu verði.
Til þess að kaupa aðgang að streymisviðburði kaupir þú fyrst miða á Tix.is. Í kaupferli ert þú beðin um að gefa upp kennitölu og símanúmer. Það er mikilvægt að þú gefur upp réttar upplýsingar hér, því aðgangur að streyminu opnast á þeirri kennitölu sem þú gefur upp.
Ef þú ert nú þegar með NovaTV aðgang, þarftu bara að opna appið, skrá þig inn með rafrænum skilríkjum og finna valmyndina ‘Viðburðir’. Viðburðurinn sem þú keyptir miða á ætti nú að vera opinn og aðgengilegur, og trailer ætti að spilast með hljóð og mynd. Ef hann opnast ekki strax prófaðu að endurræsa forritið.
Ef þú ert ekki þegar með aðgang að NovaTV, engar áhyggjur. Farðu bara á novatv.is og nýskráðu þig með rafrænum skilríkjum. Þegar skráningu er lokið opnast viðburðinn, og NovaTV aðgangur fylgir frítt með þar til 2 daga eftir tónleikana.
Mundu að skrá þig inn á NovaTV með rafrænum skilríkjum á þeirri kennitölu sem miðinn er verslaður á.
Það er lang þægilegast að horfa á tónleikana í gegn um NovaTV appið í Apple TV og Android TV.
Ef þú átt hvorugt er best að horfa í gegnum NovaTV appið í snjallsíma eða í vafra í tölvunni og varpa í sjónvarpið þitt. Sjá ítarlegri leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Hér eru bestu leiðirnar til þess taldar upp:
Opnaðu Safari í iPhone, iPad eða Mac tölvu og tengdu tækið við sama WiFi og AppleTV (eða snjallsjónvarpið þitt sem styður AirPlay). Opnaðu streymið í Safari, smelltu á AirPlay hnappinn og veldu tækið sem þú vilt horfa í.
Opnaðu Chrome í Android símanum, spjaldtölvunni eða fartölvunni, tengdu tækið við sama WiFi og Chromecastið er tengt við, og opnaðu streymið í vafra. Smelltu á cast hnappinn til að varpa því í Chromecast.
Tengdu tölvuna við sjónvarp með HDMI snúru, veldu rétta input með sjónvarpsfjarstýringunni, og þú ættir að sjá fartölvuskjáinn í sjónvarpinu. Farðu á novatv.is og opnaðu streymið. Ekki gleyma að stilla hljóðstillingarnar rétt.
Samsung símar – opnaðu streymið í NovaTV appinu fyrir Android eða á novatv.is, smelltu á SmartView hnappinn. Þú finnur hnappinn ef þú dregur niður valmyndina efst í símanum.
Google Pixel símar – opnaðu streymið í NovaTV appinu fyrir Android eða á novatv.is, farðu í stillingarnar og veldu Connected devices > Connection preferences > Cast
Huawei símar – opnaðu streymið í NovaTV appinu fyrir Android eða á novatv.is og smelltu á Wireless Projection hnappinn. Þú finnur hnappinn ef þú dregur niður valmyndina efst í símanum.
Þú getur opnað novatv.is í vafra í snjallsjónvarpi og horft á tónleikana þar, en athugið að sumir vafrar í snjallsjónvörpum styðja illa við streymi. Þú getur lent í því að streymið opnast ekki eða höktir eða frýs. Ef það gerist er best að prófa aðrar lausnir hér fyrir ofan.
Þú finnur einnig frekari leiðbeiningar um NovaTV á vef Nova.
Spólaðu örlítið til baka. Þá gefur þú nettengingunni þinni smá tíma til að hlaða streymið. Ef það virkar ekki prófaðu aðra nettengingu eins og 4G, eða skiptu um tæki eða vafra. Ef það virkar ekki, vinsamlegast hafðu samband við Nova.
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Tónleikarnir verða aðgengilegir í NovaTV í 48 klst eftir tónleika.
Já, þú getur það í nýjustu útgáfu af Nova appinu. Athugið að Nova appið og NovaTV er ekki það sama. Svona gerir þú það:
1. Opna miða í Vasanum í Nova appinu.
2. Smella á „Gefa miða áfram“
3. Slá inn kennitölu viðtakanda
Athugið að miðinn birtist í Vasanum í Nova appinu sem skráð er á númerið sem þú gafst upp í kaupferlinu á Tix. Ef þú finnur miðann þinn ekki þar gæti verið að rangt númer hafi verið slegið inn.