Sissel kemur nú hingað til lands þriðja árið í röð til að syngja inn jólin fyrir Íslendinga í Eldborg Hörpu. Hver sá sem sér Sissel kolfellur fyrir töfrandi sviðsframkomu hennar en þessir töfrar hafa sett hana í hóp vinsælustu söngkvenna víða í heiminum.
Tónlistarmönnum þykir afar eftirsóknarvert að vinna með þessari skærustu söngstjörnu Norðurlandanna og hefur hún t.a.m. unnið með Diana Krall, Placido Domingo, Bryn Terfel og José Carreras.
Á hverju ári heldur hún upp á jólin víðsvegar í Skandinavíu þar sem hún selur upp hverja tónleikana á fætur öðrum og í ár mun hún endurtaka leikinn. Sem fyrr hefur hún fengið til liðs við sig glæsilegt lið tónlistarmanna frá Bandaríkjunum, Englandi og Noregi og saman munu þau breiða sálar- og gospelunaði yfir okkar uppáhaldsjólalög og lokka fram jólagleði í hjörtum okkar eins og þeim einum er lagið.
Tvennir tónleikar eru í boði og öll verðsvæði á síðdegistónleikum eru 1.000 kr. lægri en samsvarandi verðsvæði á kvöldtónleikum. Nánari upplýsingar um tímasetningar og verðsvæði hér fyrir neðan. Athugið; ekki er hægt að bæta við fleiri tónleikum.