skip to content
3. ágúst 2025
Brekkusöngur 2025
Streymi

Brekkusöngur er fyrir löngu orðinn fastur liður í hátíðarhöldum Íslendinga um verslunarmannahelgina. Dagskrá sunnudagskvöldsins verður send út aftur í beinu streymi þannig þú getur tekið þátt hvar sem þú ert í heiminum. 

Glæsileg dagskrá, brenna, blys og þessi einstaka og óviðjafnanlega stemning sem allir þekkja – beint til þín, hvort sem þú ert heima í stofu, í tjaldi eða erlendis.

Dagskrá kvöldsins:
19:30 – Upphitun: Bjarni Ólafur Guðmundsson fær til sín góða gesti og telur niður í tónleikana
20:30 – Tónleikar með Stuðlabandinu og gestum: Stefán Hilmarsson, Sigga Beinteins, Emmsjé Gauti, Björgvin Halldórsson og GDRN
23:00 – Brekkusöngur – Magnús Kjartan
00:00 – Blys

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun stýra brekkusöngnum aftur þetta árið – og allir geta sungið með hvar sem þeir eru í heiminum.

Ljóst er að hér er um að ræða einstaka tónlistarveislu og Íslendingar geta sameinast um allan heim og gert sér glaðan dag. Aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Brekkusöngur has long become a regular feature of Icelanders’ celebrations during the Verslunarmannahelgi (Bank Holiday Weekend). The Sunday evening program will be rebroadcast live via stream, allowing you to participate from anywhere worldwide.

Prepare to be captivated by our impressive program, complete with a bonfire, fireworks, and the unique, incomparable atmosphere everyone knows and loves. This experience will be delivered directly to you, whether you’re at home in your living room, in a tent, or abroad, promising a truly unique and exciting event.

Evening program:
19:30- Warm-up: Bjarn Ólafur Guðmundsson chats with various guests and counts down to the show
20:30 – Stuðlabandið and guests: Diljá, Eló, Hreimur, Jóhanna Guðrún, Klara Elías, Sverrir Bergmann, and Ragga Gísla
23:00 – Brekkusöngur – Magnús Kjartan
00:00 – Fireworks

Magnús Kjartan Eyjólfsson, lead singer and guitarist of Stuðlabandið, will lead the brekkusöngur again this year – and everyone can sing along wherever they are in the world.

It is clear that this is a unique musical feast, and viewers from around the world can unite to have a joyful evening. Only one ticket is required per household.

Einungis er hægt að kaupa aðgang fyrir myndlykla Símans og Vodafone inn í myndlyklunum.
Sala í netstreymi fer fram á veeps.com og livey.is.
Veeps: www.veeps.com/brekkusongur
Livey: www.livey.events/brekkusongur

Dagsetning

3. ágúst 2025

Staður

Heima í stofu

Miðaverð

5.900 ISK

Hlekkir

Þú gætir haft áhuga á..