Spurt og svarað
queens of the stone age
í Höllinni 24. október
18:30 – Húsið opnar
20:00 – Virgin Orchestra
20:30 – Hlé
21:00 – QUEENS OF THE STONE AGE
23:00 – Áætluð tónleikalok*
*Dagskráin er birt með fyrirvara og tímasetningar geta breyst
MÆTIÐ SNEMMA
Búast má við þungri umferð að Laugardalshöll rétt fyrir tónleika og hvetjum við því gesti til að mæta tímanlega. Við mælum með því að ganga, hjóla eða nýta almenningssamgöngur eða leigubíl, sé þess kostur.
Hér er yfirlitsmynd af svæðinu.
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA ÞEGAR ÉG ER KOMINN Á STAÐINN?
Vertu með tónleikamiðana tilbúna til innskönnunar. Tónleikamiðana fékst þú senda í tölvupósti frá Tix miðasölu [email protected]. Fylgdu merkingunum til að finna þitt svæði sem tilgreint er á tónleikamiðanum. Vertu búinn að losa þig við alla hluti sem geta valdið skaða eða tjóni. Við getum ekki geymt neitt fyrir þig.
VERÐUR FATAHENGI?
Já, það verða fatahengi sem hægt er að nota gegn greiðslu. Athugið að takmarkað pláss er í þeim.
VERÐUR VEITINGASALA?
Já, það verður veitingasala. Matarvagnar á svæðinu og drykkir og snarl á börum. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.
MÁ ÉG KOMA MEÐ EIGIN MATAR OG DRYKKJARVÖRUR?
Nei, það er ekki leyfilegt af heilsu- og öryggisástæðum. Þú verður að losa þig við allt slíkt áður en gengið er í húsið, við getum ekki geymt neitt fyrir þig.
EF ÉG Á MIÐA Í STÚKU, MÁ ÉG FARA NIÐUR Á GÓLFSVÆÐIÐ Á MIÐJUM TÓNLEIKUM?
Nei, það er ekki leyfilegt af öryggisástæðum. Allir gestir þurfa að halda sig á sínu svæði.
EF ÉG ÞARF AÐ YFIRGEFA TÓNLEIKASVÆÐIÐ, KEMST ÉG AFTUR INN?
Ef þú þarft nauðsynlega að yfirgefa tónleikasvæðið og þarft að komast inn aftur, þarftu að gefa þig fram við gæslu við innganga, áður en þú yfirgefur tónleikasvæðið. Gæslufólkið við inngangana mun skaffa þér það sem þarf svo að þú komist inn aftur.
ERU EINHVERJIR HLUTIR BANNAÐIR Á STAÐNUM?
Já, allir hlutir sem geta valdið skaða eða tjóni eru bannaðir, þar á meðal:
Athugið að þetta er ekki tæmandi listi og gæslufólk metur hvað telst geta verið ógn við öryggi og heilsu. Gestir bera sjálfir ábyrgð á að losa sig við hlutina áður en gengið er í húsið, við getum ekki geymt neitt fyrir þig.
ÉG TÝNDI EÐA GLEYMDI EINHVERJU Á TÓNLEIKUNUM, HVAÐ GERI ÉG?
Allir hlutir sem finnst í salnum eftir tónleika verða settir í afgreiðslu Laugardalshallar og hægt að nálgast þá þar. Vinsamlegast hafa samband beint við Laugardalshöll eftir tónleika varðandi tapaða hluti.
Hér að ofan ættir þú að finna svör við öllum algengum spurningum. Finnir þú ekki svar við því sem þú leitar eftir hafðu þá samband við okkur á [email protected]
ER ALDURSTAKMARK?
Öll eru velkomin, en 18 ára og yngri þurfa að vera í fylgd fullorðinna.
Sama verð gildir fyrir alla; enginn afsláttur er fyrir börn og barnamiðar ekki í boði.
ÉG ÞARF AÐ KAUPA MIÐA Á HJÓLASTÓLASVÆÐI, HVAÐ GERI ÉG?
Miðar fyrir hjólastóla eru seldir 2 saman í netsölu og gildir annar miðinn fyrir aðstoðarfólk.
ÉG FÉKK EKKI STAÐFESTINGAPÓST EFTIR MIÐAKAUP, HVAÐ GERI ÉG?
Ef netfang er rétt skráð, þá er pósturinn líklega í rusl/junk hólfi hjá þér.
Ef ekkert finnst hafðu þá samband við Tix miðasölu á [email protected]
ÉG KEYPTI MIÐA EN FINN ÞÁ EKKI, HVAÐ GERI ÉG?
Þú getur haft samband við Tix miðasölu á [email protected]