skip to content

Aðgengi

Laufey í Kórnum 14. og 15. mars 2026

Þar sem að Kórinn er staðsettur í miðju íbúahverfi þarf að vera ákveðið skipulag á því hvernig gestir komast að húsinu og hér koma upplýsingar um það.

Ekki er hægt að bjóða öllum gestum að keyra inn í hverfið á eigin bílum, því ekki er pláss fyrir þá í nágrenni við Kórinn og það myndi geta orsakað stíflur og truflanir fyrir gesti og íbúa.

Hvernig er best að mæta á tónleikastað?
Þar sem að Kórinn er staðsettur í miðju íbúðahverfi þarf að vera ákveðið skipulag á því hvernig gestir komast að húsinu.
Ekki er hægt að bjóða öllum gestum að leggja bílum sínum inn í hverfinu, því ekki er pláss fyrir þá í nágrenni við Kórinn en eftirfarandi leiðir eru í boði:

  • Ef þú getur gengið eða hjólað í Kórinn þá hvetjum við þig til að gera það. Nóg pláss verður við Kórinn til að geyma hjól.
  • Sætaferðir verða frá Smáralind frá kl. 18:00 og þær ganga stanslaust þar til allir eru komnir til baka eftir tónleika. Sætaferðir eru gjaldfrjálsar.
  • Leigubílar munu geta farið að sérstöku svæði með gesti nálægt Kórnum.
  • Bílar með merki fyrir hreyfihamlaða fá aðgang að svæðinu til þess að koma gestum að Kórnum.
  • Sérstök bílastæði fyrir hreyfihamlaða verða nálægt Kórnum og er aðgengi að þeim háð því að vera með merki fyrir hreyfihamlaða og á meðan pláss leyfir.
 
 

Hvað á ég að gera þegar ég mæti í Kórinn?
Vertu með tónleikamiðana tilbúna til innskönnunar, tónleikamiðana fékst þú senda í tölvupósti frá Tix miðasölu [email protected].  Fylgdu merkingunum til að finna þitt svæði sem tilgreint er á tónleikamiðanum. Vertu búinn að losa þig við alla hluti sem geta valdið skaða eða tjóni. Við getum ekki geymt neitt fyrir þig.

Verður dyrum læst eftir að tónleikar hefjast?
Nei, við hvetjum fólk til að mæta snemma og lágmarka ráp á meðan tónleikum stendur, en engum dyrum verður læst og engin boð eða bönn varðandi hreyfingar gesta eftir að í húsið er komið.

Hvað gerist ef ég mæti seint?
Við hvetjum fólk til að mæta snemma og valda ekki truflun eftir að tónleikar hefjast, en þér verður hleypt inn ef þú mætir seint.

Ef ég þarf að yfirgefa tónleikasvæðið, kemst ég inn aftur?
Já, þú kemst inn aftur. Þú færð sérstakt armband við útgöngu til þess að geta komist inn aftur.

Ég á erfitt með gang, get ég fengið hjólastól á staðnum til að komast í sætið mitt?
Já, það verður hjólastóll á staðnum sem hægt er að fá lánaðann. Hjólastóllinn er eingöngu ætlaður í að koma sér í og úr sæti. Þar sem þessi þjónusta er í boði fyrir alla gesti þarf að skila hjólastól aftur eftir að sest er í sæti.