skip to content

Spurt og svarað

queens of the stone age 

í Höllinni 24. október 

dagskrá

18:30 – Húsið opnar 
20:00 – Tónleikar hefjast 

Nánari dagskrá kynnt síðar.

Mynd af sal

miðasala

ER ALDURSTAKMARK? 

Öll eru velkomin, en 18 ára og yngri þurfa að vera í fylgd fullorðinna.
Sama verð gildir fyrir alla; enginn afsláttur er fyrir börn og barnamiðar ekki í boði.

STAFRÆN BIÐRÖÐ, HVAÐ ER ÞAÐ?

Þegar miðasala hefst verður notast við stafræna biðröð. 

Stafræn biðröð hefst 30 mín áður en miðasala hefst. Til þess að fara í biðröð smellir þú á “kaupa miða”.

Á slaginu kl. 11:00 þegar sala hefst verður öllum sem hafa skráð sig í biðröð raðað af handahófi. Þau sem mæta í röðina eftir kl. 10:00 fara aftast. Eftir að þú ert komin(n) með pláss í biðröðinni sérðu alltaf áætlaðan biðtíma. Athugið að pláss í biðröðinni er ekki trygging fyrir því að þú náir að kaupa miða.

ÉG ÞARF AÐ KAUPA MIÐA Á HJÓLASTÓLASVÆÐI, HVAÐ GERI ÉG?

Miðar fyrir hjólastóla eru seldir 2 saman í netsölu og gildir annar miðinn fyrir aðstoðarfólk. 

ÉG FÉKK EKKI STAÐFESTINGAPÓST EFTIR MIÐAKAUP, HVAÐ GERI ÉG? 

Ef netfang er rétt skráð, þá er pósturinn líklega í rusl/junk hólfi hjá þér.
Ef ekkert finnst hafðu þá samband við Tix miðasölu á 
[email protected]

ÉG KEYPTI MIÐA EN FINN ÞÁ EKKI, HVAÐ GERI ÉG?

Þú getur haft samband við Tix miðasölu á [email protected]

aðgengi

Allar upplýsingar um aðgengi má finna á sérstakri síðu. Smelltu á “Aðgengi og skýringarmyndir hér að ofan” til þess að sjá skýringarmyndir og upplýsingar um aðgengi.  

Á STAÐNUM

HVAÐ Á ÉG AÐ GERA ÞEGAR ÉG ER KOMINN Á STAÐINN?

Vertu með tónleikamiðana tilbúna til innskönnunar. Tónleikamiðana fékst þú senda í tölvupósti frá Tix miðasölu [email protected].  Fylgdu merkingunum til að finna þitt svæði sem tilgreint er á tónleikamiðanum. Vertu búinn að losa þig við alla hluti sem geta valdið skaða eða tjóni. Við getum ekki geymt neitt fyrir þig.

VERÐUR FATAHENGI? 

Já, það verða fatahengi sem hægt er að nota gegn greiðslu. Athugið að takmarkað pláss er í þeim.

VERÐUR VEITINGASALA?

Já, það verður veitingasala. Matarvagnar á svæðinu og drykkir og snarl á börum. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.

MÁ ÉG KOMA MEÐ EIGIN MATAR OG DRYKKJARVÖRUR?

Nei, það er ekki leyfilegt af heilsu- og öryggisástæðum. Þú verður að losa þig við allt slíkt áður en gengið er í húsið, við getum ekki geymt neitt fyrir þig.

EF ÉG Á MIÐA Í STÚKU, MÁ ÉG FARA NIÐUR Á GÓLFSVÆÐIÐ Á MIÐJUM TÓNLEIKUM?

Nei, það er ekki leyfilegt af öryggisástæðum. Allir gestir þurfa að halda sig á sínu svæði.

EF ÉG ÞARF AÐ YFIRGEFA TÓNLEIKASVÆÐIÐ, KEMST ÉG AFTUR INN?

Ef þú þarft nauðsynlega að yfirgefa tónleikasvæðið og þarft að komast inn aftur, þarftu að gefa þig fram við gæslu við innganga, áður en þú yfirgefur tónleikasvæðið. Gæslufólkið við inngangana mun skaffa þér það sem þarf svo að þú komist inn aftur.

ERU EINHVERJIR HLUTIR BANNAÐIR Á STAÐNUM?

Já, allir hlutir sem geta valdið skaða eða tjóni eru bannaðir, þar á meðal:

  • DSLR og aðrar stórar myndavélar
  • Drónar eða fjarstýrð loftför
  • Fartölvur, myndbandsupptökutæki, þrífætur og GoPro myndavélar (eða sambærilegt)
  • Stór veggspjöld/skilti
  • Hljóðfæri og aðrir hlutir sem gefa frá sér hljóð
  • Glerflöskur
  • Vatnsflöskur eða brúsar úr hörðu efni og/eða aðrar flöskur með loki/tappa
  • Hnífar og vopn
  • Stórir fánar
  • Laserbendingar
  • Tússpennar og málning
  • Skilti eða fatnað með móðgandi eða ósæmilegu efni
  • Barnavagnar 
  • Eldfimt efni t.d. úðabrúsa
  • Flugeldar
  • Hlutir sem hægt er að nota sem kastvopn
  • Verkfæri
  • Stólar og kollar
  • Bakpokar, ferðatöskur, innkaupapokar eða stórar hand- eða myndavélatöskur
  • Gæludýr (nema vottaða þjónustuhunda fyrir gesti með fötlun)


Athugið að þetta er ekki tæmandi listi og gæslufólk metur hvað telst geta verið ógn við öryggi og heilsu. Gestir bera sjálfir ábyrgð á að losa sig við hlutina áður en gengið er í húsið, við getum ekki geymt neitt fyrir þig.

ÉG TÝNDI EÐA GLEYMDI EINHVERJU Á TÓNLEIKUNUM, HVAÐ GERI ÉG?

Allir hlutir sem finnst í salnum eftir tónleika verða settir í afgreiðslu Laugardalshallar og hægt að nálgast þá þar. Vinsamlegast hafa samband beint við Laugardalshöll eftir tónleika varðandi tapaða hluti.

Hér að ofan ættir þú að finna svör við öllum algengum spurningum. Finnir þú ekki svar við því sem þú leitar eftir hafðu þá samband við okkur á [email protected]