Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Brekkusöngur 2022 – Streymi

Brekkusöngur er fyrir löngu orðinn fastur liður í hátíðarhöldum Íslendinga um verslunarmannahelgina. Vegna fjölda áskorana verður dagskrá sunnudagskvöldsins send út aftur í beinu streymi þannig þú getur tekið þátt hvar sem þú ert í heiminum.

Glæsileg dagskrá, brenna, blys og þessi einstaka og óviðjafnanlega stemmning sem allir þekkja – beint til þín, hvort sem þú ert heima í stofu, í tjaldi eða erlendis.

Dagskrá kvöldsins:
20:00 – Upphitun
21:00 – Albatross og gestir
23:00 – Brekkusöngur

Ásamt Albatross koma fram:

  • Birgitta Haukdal
  • Herbert Guðmundsson
  • Jóhanna Guðrún
  • Klara Elias
  • Ragga Gísla
  • Sverrir Bergmann

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun stýra brekkusöngnum þetta árið en hann sló í gegn í fyrra – og allir geta sungið með hvar sem þeir eru í heiminum. Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador samhliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016.

Ljóst er að hér er um að ræða einstaka tónlistarveislu og Íslendingar geta sameinast um allan heim og gert sér glaðan dag. Aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Dagsetning

31. júlí 2022

Staður

Heima í stofu

Hlekkir