Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Brekkusöngur 2023 – Streymi

Brekkusöngur er fyrir löngu orðinn fastur liður í hátíðarhöldum Íslendinga um verslunarmannahelgina. Vegna fjölda áskorana verður dagskrá sunnudagskvöldsins send út aftur í beinu streymi þannig þú getur tekið þátt hvar sem þú ert í heiminum. 

Glæsileg dagskrá, brenna, blys og þessi einstaka og óviðjafnanlega stemning sem allir þekkja – beint til þín, hvort sem þú ert heima í stofu, í tjaldi eða erlendis.

Dagskrá kvöldsins:
20:00 – Upphitun
21:00 – Bríet
21:40 – Jón Ólafs og vinir: Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Eyjólfur Kristjánsson og Hildur Vala. Stuðlabandið sér um undirspil.

23:00 – Brekkusöngur – Magnús Kjartan
00:00 – Blys

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun stýra brekkusöngnum aftur í ár – og allir geta sungið með hvar sem þeir eru í heiminum. Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador samhliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016.

Ljóst er að hér er um að ræða einstaka tónlistarveislu og Íslendingar geta sameinast um allan heim og gert sér glaðan dag. Aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Dagsetning

6. ágúst 2023

Staður

Heima í stofu

Hlekkir