skip to content
5. nóvember 2026
Daði Freyr og Sinfó – IA26 Special Event
Eldborg, Harpa

Tilkynnt verður fljótlega hvenær miðasala hefst

Daði Freyr er íslenskur söngvari, lagahöfundur og pródúsent sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af ástsælustu og sérkennilegustu popplistamönnum landsins. Hann er þekktur fyrir snjallar og húmorískar lagasmíðar, grípandi synth-pop hljóðheim og glettna, ófyrirsjáanlega nálgun sem hefur höfðað til áheyrenda um allan heim.

Á þessum tónleikum stígur Daði Freyr í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hér fær tónlist hans nýjan og kraftmikinn búning þar sem sinfónískar útsetningar mæta einkennandi popphljómi hans. Úr verður einstök tónlistarupplifun þar sem þekkt lög fá nýtt líf og áheyrendum gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa tónlist Daða Freys í glæsilegum og víðfeðmum hljómi sinfóníunnar.

Daði vakti heimsathygli árið 2020 með laginu Think About Things, sem fór sigurför á netinu á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst, safnaði yfir 100 milljónum spilana og hlaut lof víða að, meðal annars frá tónlistarfólki og fjölmiðlafólki á borð við P!nk, James Corden og Russell Crowe. Síðan þá hefur hann byggt upp öflugan alþjóðlegan aðdáendahóp með eftirminnilegum tónleikum þar sem samstilltir dansar, leikandi sjónræn framsetning og hlý, sammannleg stemning skapa einstaka upplifun. Hann hefur selt upp tónleikastaði víða um Evrópu og Bandaríkin, komið fram á stórum tónlistarhátíðum og fest sig í sessi sem listamaður sem einfaldlega verður að sjá á sviði.

Nú stígur Daði inn í nýjan skapandi kafla með tónlist af væntanlegri plötu þar sem hans einkennandi hljóðheimur mætir nýjum samstarfsverkefnum og aukinni tilfinningadýpt. Með hverri útgáfu og hverjum tónleikum heldur hann áfram að þróast sem listamaður og skapa popptónlist sem hreyfir jafnt við líkama og hjarta.

Hljómsveitarstjórinn er Daníel Bjarnason, sem hefur nýlega gert garðinn frægan með Rosalía.

Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2026 sem sérstakur Partner Event. Iceland Airwaves miðahafar fá forgang og afslátt, en tónleikarnir eru opnir öllum.

Með tónleikunum heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands áfram samstarfi sínu við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Áður hefur Sinfó meðal annars tekið þátt í Iceland Airwaves á tónleikum með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds, Ásgeiri Trausta og nú síðast Mugison.

 

 

 

Tilkynnt verður fljótlega hvenær miðasala hefst!

Dagsetning

5. nóvember 2026

Staður

Eldborg Harpa

Miðaverð

Miðaverð tilkynnt fljótlega

Hlekkir

Þú gætir haft áhuga á..