Sumir uppistandarar segja brandara. Daniel Sloss segir sögur sem hitta beint í mark.
Hann mætir aftur í Háskólabíó vegna fjölda áskorana. Síðast var uppselt og færri sem komust að en vildu.
Daniel hefur einstakt lag á að láta fólk hlæja að hlutum sem það vissi ekki að það væri tilbúið að hlæja að.
“Ósvífin, sæt og skörp” – New York Times
Miðaverð er 11.990 og selt er í númeruð sæti.
Um Daniel Sloss
Á síðustu árum hefur skoski grínistinn orðið eitt stærsta nafn heimsins í uppistandi með sýningum sem blanda saman stórkostlegum húmor, persónulegum sögum og óþægilega nákvæmum athugunum á mannlegu eðli. Milljónir hafa séð Netflix-sérþætti hans DARK og Jigsaw, sem gerðu hann að alþjóðlegu nafni og komu af stað umræðum langt út fyrir heim grínsins.
Hann kemur nú til okkar í annað sinn með nýjustu sýninguna BITTER. Þar tekst hann á við lífið eins og það er í raun og veru; samböndin, mistökin, vonbrigðin og allt það sem gerir okkur mannleg. Daniel Sloss er einn af þeim grínistum sem fólk talar um löngu eftir að sýningunni lýkur.
Nú gefst íslenskum aftur áhorfendum tækifæri til að sjá af hverju. Ekkert jafnast á við Daniel Sloss á sviði, í beinni og án síu.
Athugið: Sýningin byrjar á auglýstum tíma og ekki er öruggt að hægt sé að hleypa inn í salinn eftir að hún er hafin. Bannað er að mynda, taka upp eða streyma í salnum og með því að kaupa miða samþykkir kaupandi þau skilyrði. Sýningin inniheldur sterkt orðbragð; 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd forráðamanna.

