Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Dívur 2019

14. september næstkomandi mun Eldborgasalur Hörpu springa af kvenlegri orku þar sem Dívur Íslands munu töfra fram ógleymanlega tónleikaupplifun.

Dívurnar Jóhanna Guðrún og Svala, sem eru öllum löndum þekktar, hafa ákveðið að bjóða til sín sérstaka gesti til að syngja með sér öll helstu dívu lög síðustu áratuga. Þessar góðþekktu powerballöður með Whitney, Celine, Arethu, Diana, Beyonce og fleiri goðsagnarkennda kvenna verða flutt af bestu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins.

Sérstök sviðsmynd verður sett upp, hljóð og ljós verða á heimsmælikvarða og sýningin sjálf verður svo flott að Mariah sjálf myndi glöð stíga þar á svið.

Í þetta sinn hafa Svala og Jóhanna boðið til sín eftirfarandi dívu stórsöngvurum:
 –   Dísella
 –   Friðrik Ómar
 –   Katrín Halldóra
 –   Ragga Gröndal
 –   Sigga Beinteins

Hljómsveitina skipa:
 –   Davíð Sigurgeirsson, gítar og hljómsveitarstjórn
 –   Ari Bragi Kárason, trompet og fl.
 –   Halldór Smárason, hljómborð og raddir
 –   Ingvar Alfreðsson, hljómborð og raddir
 –   Rögnvaldur Borgþórsson, gítar
 –   Steinar Sigurðarson, saxafónn og fl.
 –   Valdimar Olgeirsson, bassi
 –   Þorvaldur Þór Þorvaldsson, trommur

Bakraddir:
   Anna Sigríður Snorradóttir
   Arnar Jónsson
   Rakel Pálsdóttir

Einnig koma fram Gospelkór Jóns Vídalíns undir stjórn Davíðs og Jóhönnu og strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir.

Dagsetning

14. september 2019

Staður

Harpa Eldborg

Hlekkir