UPPSELT!
Færeyska tónlistarkonan Eivør er að gefa út nýja plötu 14. júní. Platan ber titilinn “Enn” og mun hún fylgja henni eftir með viðamiklu tónleikaferðalagi um Evrópu sem hefst í Reykjavík.
Eivør kemur fram í Silfurberg Hörpu 15. september og eru einungis númeruð sæti í boði.
‘Enn’ verður fjölbreytt, tilraunakennd og dýnamísk plata. Eivør lýsir tónheiminum sem blöndu á milli sinfónískrar geimóperu og rafræns og drungalegs slagverksheims. ‘Enn’ táknar áframhaldandi ástand tilfinninga og tilvistar, með plötunni vill Eivør segja að enn sé von, og enn sé ást.
Ásamt Eivøru kemur fram hljómsveit hennar sem samanstendur af Mattias Kapnas, Per Ingvald Højgaard Petersen og Mikael Blak. Eivør mun flytja öll 8 lögin frá nýju plötunni, auk fleiri laga úr safninu.
Einungis um 700 miðar eru í boði og aðeins er selt í númeruð sæti.
Upphitun: Vévaki