Þann 23. október mun Eldborg fyllast af dulúð og draumkenndri tónlist þegar Eivör stígur á sviðið. Tónleikaferð hennar um Evrópu hefst í Færeyjum og á Íslandi.
Með nýja laginu “Healer” sem kom út 28. apríl opnar Eivör dyrnar að nýjum kafla á ferlinum; kafla umbreytinga, berskjöldunar og styrks.
Eivör hefur síðan 2024 ferðast vítt og breytt um heiminn með plötuna “ENN” sem hefur notið mikilla vinsælda. Aðdáendum hefur fjölgað og hún vaxið í list sinni.
Eivör um nýútkomið lag “Healer”:
“Healer er samtal við yngri útgáfu af sjálfri mér, þá sem efaðist um allt og fannst hún aldrei vera nóg. Lagið býr í rýminu á milli þess að falla og finna fótfestu á ný. Það heldur í þá hugsun að jafnvel á þeim augnablikum sé eitthvað sterkara að byggjast upp hægt og rólega. Ég lagði hjartað mitt í þetta lag. Ég vona að það finni þig þar sem þú ert – og geti jafnvel veitt þér styrk og heilun.“
Ekki missa af Eivöru í Eldborg þann 23. október þar sem hún hefur Evróputúr með splunkunýtt efni í farteskinu!
UM EIVÖRU:
Eivör er ein sterkasta röddin í norrænu tónlistarsenunni í dag. Hún sameinar gamla tónlistarhefð og nútímalegan hljóðheim á einstakan hátt. Eivör ólst upp í Færeyjum og tónlist hennar mótast af náttúru eyjanna og sterkri sönghefð þjóðarinnar, þar sem tónlist er stór hluti af daglegu lífi.
Hún hefur gefið út 11 plötur sem allar eru undir áhrifum norrænnar þjóðlagahefðar. Tónlist hennar, hrá og fáguð, einkennist af kraftmiklum söng og sterkum takti. Árið 2021 hlaut hún Nordic Council Music verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag sitt til tónlistar.
Auk eigin útgáfu hefur Eivör vakið athygli um allan heim fyrir tónlist sem hún hefur samið fyrir kvikmyndir, sjónvarp og tölvuleiki, meðal annars The Last Kingdom og God of War. Þar hefur einstök rödd hennar hjálpað til við að skapa áhrifamikinn og tilfinningaríkan hljóðheim.
Eivör hefur ferðast víða, komið fram í Evrópu, Norður-Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Eftir útgáfu plötunnar ENN árið 2024 hefur hún haldið áfram að stækka aðdáendahóp sinn um allan heim. Tónleikar hennar eru þekktir fyrir mikinn kraft, sterkar tilfinningar og einstaka stemningu.
Tónlist Eivarar er dimm, falleg og áhrifamikil. Blönduð af kvikmyndalegum hljóðum, raftónlist og norrænum áhrifum. Hún byggir á hefðum enn hljómar á sama tíma fersk og nútímaleg. Hún hefur nú samið við Nuclear Blast og nýja tónlistin hennar markar upphaf nýs kafla sem er persónulegri, beinni og enn sterkari.


