Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Hannah Gadsby: Body of Work

Emmy verðlaunahafinn Hannah Gadsby er á ferð um heiminn með splúnkunýja uppistandssýningu Body of Work og verður í Háskólabíói 28. október 2022.

Árið 2018 sló Hannah í gegn í Netflix myndinni Nanette sem er upptaka af sýningu hennar í Óperuhúsinu í Sidney og hlaut myndin bæði Emmy og Peabody verðlaun. Í kjölfarið opnuðust margs konar dyr í skemmtanabransanum en Hannah ákvað að halda áfram að gera það sem hún elskar mest og getur ekki hætt: Uppistand.

Ári síðar hélt Hannah á ferðalag um allan heim með sýninguna Douglas og var upptaka af sýningu hennar í Los Angeles einnig gefin út á Netflix í febrúar á síðasta ári, rétt áður en árið 2020 fór í hundana. Undanfarið ár hefur Hannah haldið sig í heimalandi sínu Ástralíu í skjóli frá heimsfaraldri og skipulagt nýju sýningu sína sem er nú á leið til Íslands sem hluta af ferðalagi hennar um Evrópu og Bandaríkin á næsta ári.

 

Dagsetning

28. október 2022

Staður

Háskólabíó

Hlekkir