Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Passenger

Mike Rosenberg, betur þekktur sem Passenger, heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 12. júní. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna og náð platínusölu víða um heim en kemur frá Brighton, Englandi.

Ferðalag hans frá götuhornum til íþróttaleikvanga hófst með laginu “Let Her Go” sem náði toppsætinu í 19 löndum árið 2013 og hefur nú hlotið yfir tvo milljarða spilana á YouTube. En í heildina hefur hann gert 12 plötur á 13 árum.

Passenger á nú öflugan hóp aðdáenda um allan heim, þar á meðal Íslandi, sem eflaust fagna komu hans hingað til lands í júní.

Dagsetning

12. júní 2022

Staður

Eldborg, Harpa

Hlekkir