skip to content
1. september 2024
Rickie Lee Jones
í Silfurbergi Hörpu

Rickie Lee Jones er margverðlaunuð bandarísk söngkona og lagahöfundur sem nýtur virðingar um allan heim fyrir lagasmíðar sínar. Hún hefur m.a. verið tilnefnd til átta Grammy verðlauna og þar af unnið þau tvisvar.  Rickie hefur veitt popp, rokk, R&B og soul tónlistarfólki innblástur um áratuga skeið og ævintýrið hófst með fyrstu plötu hennar árið 1979. Hún bar hennar eigið nafn, skaut Rickie á stjörnuhimininn og færði henni sín fyrstu Grammy verðlaun sem besti nýliði ársins

Á síðasta ári kom út 15. plata Rickie, Pieces of Treasure, þar sem hún vinnur á nýjan leik með Russ Titelman sem hljóðritaði fyrstu tvær plötur hennar. Platan hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda og hlustenda um allan heim og fékk Rickie sína áttundu Grammy tilnefningu sem Besti hefðbundni popp söngvari ársins fyrir plötuna.

Rickie hefur verið á tónleikaferðalagi um Bandaríkin, Evrópu og Ástralíu og kemur til Íslands í september með tónleika í Silfurbergi Hörpu.

Rickie Lee Jones is an American musician, songwriter and two-time Grammy winner from eight nominations, inspiring pop, rock, R&B and soul musicians for decades, beginning with her star-making self-titled debut in 1979, winning her Best New Artist Grammy award. Last year, she released her 15th album, Pieces of Treasure, a reunion with Russ Titelman who produced her first two records, winning Rickie one more Grammy nomination as Best Traditional Pop Vocal Album.

Rickie has been touring America, Europe and Australia, coming to Iceland in September for a evening in Harpa.

Dagsetning

1. september 2024

Staður

Silfurberg

Miðaverð

A svæði: 13.990 kr.
B svæði: 12.990 kr.

Hlekkir

Þú gætir haft áhuga á..