skip to content
4. nóvember 2026
Shygirl – IA26 Special Event
Silfurberg, Harpa

ALASKA & JOEY CHRIST HITA UPP!

Shygirl kemur með eitt heitasta “club-show” Evrópu til Íslands. Sérstakur IA26 viðburður í Silfurbergi, Hörpu þann 4. nóvember. 

Shygirl hefur á örfáum árum orðið eitt heitasta nafnið í nýrri bylgju tilraunapopps og club-tónlistar. Með útgáfum á borð við ALIAS is ME, Club Shy og Nymph hefur Shygirl fest sig í sessi sem eitt mest spennandi nafn samtímans.Hún hefur unnið með fjölmörgum listamönnum, gerði m.a. 365 með CharlieXCX. Einnig hefur hún unnið með Troye Sivan, SOPHIE, FKA twigs, Arca, PinkPantheress og okkar eigin Björk.

Joey Christ og Alaska sameina krafta sína og sjá um að rífa stemminguna í gang áður en Shygirl mætir á svið! 

Kvöldið fyrir þau sem geta ekki beðið og vilja upplifa Iceland Airwaves stemminguna strax á miðvikudegi! 

Miðaverð: 16.990 kr. (standandi)
Umsjón: Iceland Airwaves

Um Shygirl
Blane Muise eða Shygirl er breskur rappari, DJ, söngkona og lagahöfundur. Hún er auk þess meðstofnandi NUXXE útgáfu og listahóps. Tónlist hennar er kraftmikil blanda af tilraunakenndri klúbbatónlist, hip-hopi, house og raftónlist. Hún fer óhrædd yfir mörk og mótar sinn eigin hljóðheim. 

Hún vakti fyrst athygli með fyrstu útgáfum sínum og EP-plötunni Cruel Practice (2018), og fylgdi því eftir með Alias (2020) þar sem hún kynnti til sögunnar sinn sérstaka, sjónræna stíl sem byggir á alter-ego persónum. Með fyrstu breiðskífunni Nymph (2022) færði hún sig enn frekar inn í dans- og klúbbsenuna og á EP-plötunni Club Shy (2024) dýpkar hún þá nálgun enn frekar sem upphaf á nýjum kafla í listrænni þróun sinni.

Undanfarin ár hefur Shygirl styrkt stöðu sína á alþjóðavettvangi. Hún hefur verið í samstarfi með og hitað upp fyrir Charli XCX og Troye Sivan á tónleikaferðum. Hún er ein af þeim röddum sem eru að móta framtíð klúbb- og popptónlistar. Er  beinskeytt og óhrædd við að gera tilraunir í tónlistinni algjörlega á eigin forsendum.

Um Joey Christ
Síðan Joey Christ steig fyrst inn í íslensku rappsenuna árið 2017 hefur hann rutt eigin farveg með sínum einkennandi stíl og auga fyrir samstörfum. Joey er engum líkur.

Um Alaska
Á stuttum tíma hefur Alaska stimplað sig inn sem einn mest spennandi tónlistarmaður okkar samtíma. Hljóðheimurinn er hrár og draumkenndur með greinilegu áhrifum úr raf- og öndergránd senunni. 

GENERAL ONSALE STARTS ON MAY 22 AT 10 AM
SENA LIVE PRESALE IS ON MAY 21 AT 10 AM
REGISTER FOR SENA LIVE PRESALE HERE 

PRESALES FOR IA PASSHOLDERS STARTS ON MAY 20 AT 10 AM
10% DISCOUNT FOR GENERAL IA26 PASS HOLDERS
20% DISCOUNT FOR PLUS IA26 PASS HOLDERS

Shygirl brings one of Europe’s hottest club shows to Iceland for a IA26 Special Event, at Silfurberg, Harpa on November 4.

In just a few years, Shygirl has become one of the defining names in the new wave of experimental pop and club music. With releases like ALIAS is ME, Club Shy and Nymph, she has cemented herself as one of the most exciting artists in contemporary music. She has collaborated with a wide range of artists, including appearing on “365” with Charli XCX, and has also worked with Troye Sivan, SOPHIE, FKA twigs, Arca, PinkPantheress and Iceland’s own Björk.

Joey Christ and Alaska will join forces and kick the night into gear before Shygirl takes the stage.

The perfect night for anyone who simply can’t wait for the Iceland Airwaves weekend to begin!

Ticket price: 16.990 (standing only)
Promoter:
Iceland Airwaves

About Shygirl
Blane Muise, better known as Shygirl, is a British rapper, DJ, singer and songwriter, as well as co-founder of the NUXXE label and collective. Her music is a bold blend of experimental club sounds, hip-hop, house and electronic music — pushing boundaries while creating a sound entirely her own.

She first gained attention with her early releases and debut EP Cruel Practice (2018), followed by Alias (2020), which introduced her distinctive visual world and alter-ego-driven aesthetic. With her debut album Nymph (2022), she moved even deeper into dancefloor territory, while the EP Club Shy (2024) marked the beginning of a new chapter in her artistic evolution.

In recent years, Shygirl has continued to strengthen her global presence through collaborations and touring, including supporting Charli XCX and Troye Sivan on tour. She is one of the artists actively shaping the future of club and pop music — fearless, direct and completely uncompromising in her artistic vision.

About Joey Christ
Since his arrival on the Icelandic rap scene in 2017, Joey Christ has carved his own lane with a playful style and a nose for collaboration. None is equivalent, Joey is unique. 

About Alaska
Alaska is an Icelandic rapper/singer/songwrite, known for blending trap, hyperpop, and electronic influences into an ethereal yet emotionally raw sound. 

Almenn miðasala hefst 22. maí kl. 10
Forsala Senu Live er 21. maí kl. 10

Forsölur fyrir IA miðahafa er 20. maí kl. 10
10% afsláttur fyrir almenna IA26 passahafa
20% afsláttur fyrir Plus IA26 passahafa

 

Dagsetning

4. nóvember 2026

Staður

Silfurberg Harpa

Miðaverð

Miðverð er 16.990 kr.
Athugið að þetta eru standandi tónleikar.

 



Hlekkir

Þú gætir haft áhuga á..