Placeholder canvas

Liðinn viðburður

Daniel Sloss – Hubris

Daniel er skosk súperstjarna í uppistandsheiminum sem margir þekkja frá ótrúlega vinsælum þáttum hans á Netflix (Dark og Jigsaw) og HBO (X).

Síðasti túr Daníels seldist upp í 40 löndum, þar á meðal Íslandi og hann kom fram 300 sinnum í Evrpópu, Ameríku, Kanada, Ástralíu, Japan, Hong Kong og Rússlandi þar sem sýningin hlaut titilinn “stærsta uppistandssýning á ensku í Rússlandi frá uppphafi”. Hann er einnig tíður gestur í þætti Conans O’Brien og hefur slegið miðasölumet á stærstu uppstandshátíð heims, Edinburgh Festival Fringe.

Þættirnir hans á Netflix eru aðgengilegir í 190 löndum, á 26 tungumálum og sýningin hans Jigsaw er fræg fyrir að hafa átt hlut í 100,000 sambandsslitum og 200 skilnuðum á heimsvísu.

HUBRIS er glæný sýning sem fékk að líta dagsins ljós í New York og Los Angeles rétt áður en heimurinn lokaði fyrir ferðalalög, en hann hefur einnig komið fram síðan þá á bílasýningum og í uppseldum sölum þar sem möguleiki var að halda sýningar með hæfilegri fjarlægð.

Nú getum við loksins hlakkað til að halda sýningu á nokkurn veginn eðlilegan hátt og getum ekki hugsað okkur betri leið til þess en með einum fyndnasta manni heims.

Sérstakur gestur: Kai Humphries*

“Rjúkandi… yndislega svart grín. Stórkostlegt!” ★★★★★ – Mail On Sunday

“Einfaldlega heimsklassi” ★★★★★★ – Herald Sun

“Sjúklega fyndinn…Ekki missa af honum!” ★★★★★★ – The Age

Dagsetning

13. maí 2022

Staður

Háskólabíó

Hlekkir