Ólöf Arnalds snýr aftur á svið í fyrsta sinn í áratug með nýju Bella Union plötuna sína; Spíra. Ólöf er þekkt fyrir sína einstöku sópran rödd og látlausar en áhrifamiklar útsetningar.
Ólöf er ein virtasta söngkona landsins á sviði nútímalegrar þjóðlagatónlistar. Á Spíru snýr hún aftur á heimaslóðir, með íslenskum textum og þeim nána, mínimalíska hljóðheimi sem færði henni alþjóðlega viðurkenningu.
Tónleikaferðalagið samanstendur af sitjandi, hljóðlátum tónleikum í vandlega völdum rýmum með næma hljóðvist víðs vegar um Bretland og Evrópu, þar sem áhorfendum gefst sjaldgæft tækifæri til að upplifa tónlist Ólafar í sinni tærustu mynd.
Með henni á tónleikunum verða tónlistarmennirnir Skúli Sverrisson og Davíð Þór Jónsson.
UM ÓLÖFU
Ólöf Arnalds hefur í tæpa tvo áratugi byggt upp einstakt orðspor með útgáfum sínum og tónleikahaldi. Hún er klassískt menntuð í söng og á fiðlu og vakti fyrst alþjóðlega athygli sem meðlimur í íslensku hljómsveitinni múm snemma á 21. öld.
Frumraun hennar, Við og við, sem Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós framleiddi, varð fljótt að nútímaklassík í íslenskri tónlist og hlaut mörg af virtustu tónlistarverðlaunum landsins.
Ólöf hefur túrað heiminn með Dirty Projectors, Blonde Redhead, Air, CocoRosie, Jonathan Richman, Sigur Rós og Grinderman, og útgáfur hennar hafa hlotið lof gagnrýnenda meðal annars í The New York Times, NME, Mojo, Spin, Paste, Vanity Fair og The Guardian. Hún hefur einnig átt í víðtæku samstarfi við Björk, Ragnar Kjartansson, Skúla Sverrisson, Davíð Þór Jónsson og aðra leiðandi listamenn í íslenskri tónlistar- og myndlistarsenu.
Spíra markar endurkomu hennar að náinni hljóðversvinnu og er hennar fyrsta heila plata í rúmlega tíu ár.


