skip to content
28. nóvember 2026
Björgvin Halldórsson minningartónleikar
Maður sviðs og söngva

“Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.”

 

Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi.  Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.

Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn.  Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.

Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!

Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á pötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.  

Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.

Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.

GESTGJAFAR:
Svala
Krummi

SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson 

SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn

HLJÓMSVEIT:
Þóris Úlfarsson – Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson – Gítar
Einar Scheving – Slagverk
Gunnlaugur Briem – Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson – Gítar
Ómar Guðjónsson – Pedal Steel
Óttar Sæmundsen – Bassi
Phillip Joseph Doyle – Sax
Tómas Jónsson – Hljómborð

BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind

KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður 

LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason

GENERAL ONSALE STARTS JUNE 12 AT 10 AM
SENA LIVE PRESALE IS ON JUNE 11 AT 10 AM
SIGN UP FOR PRESALE HERE

Björgvin Halldórsson lived for the stage and for music. A true icon of Icelandic music, his voice and songs have become part of the nation’s cultural fabric. On Saturday, November 28, we gather at Eldborg to celebrate his life, his legacy, and the music he leaves behind.

Music was Björgvin’s lifelong passion, and throughout his remarkable career he created and performed many of the most beloved songs in Icelandic popular music. He had planned to mark his 75th birthday with a special tribute concert of his own, and preparations were already underway when he unexpectedly passed away on April 9 this year. In consultation with his family, the decision was made to carry those plans forward. Eldborg had already been booked, Björgvin had personally selected the concert poster image, and he was well into choosing the repertoire and the artists he wanted to share the stage with.

Björgvin always thought big, and this concert will be no exception. Every effort will be made to create a fitting and unforgettable tribute to a man whose impact on Icelandic music is impossible to overstate.

His daughter, Svala, is currently working on a new version of Skýið, a song Björgvin wrote in 1978 and originally released on the album Ég skal syngja fyrir þig. The song holds a special place in the hearts of Icelanders, and Svala’s moving performance of it at her father’s funeral touched the nation. Her new recording of Skýið will be released on June 12.

Svala and Krummi, Björgvin’s son & daughter, will lead an all-star lineup of Icelandic artists onto the stage at Eldborg. Joined by some of the country’s finest musicians and singers, they will celebrate the extraordinary catalogue of songs that Björgvin shared with audiences over the decades.

HOSTS:
Svala
Krummi

SINGERS:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson

SPECIAL GUEST:
Ari Eldjárn

BAND:
Þóris Úlfarsson – Keyboards, Musical Director, Arrangements
Bjarni Sigurðarson – Guitar
Einar Scheving – Percussion
Gunnlaugur Briem – Drums
Jón Elvar Hafsteinsson – Guitar
Ómar Guðjónsson – Pedal Steel
Óttar Sæmundsen – Bass
Phillip Joseph Doyle – Saxophone
Tómas Jónsson – Keyboards

VOCALS:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind

CHOIR:
Karlakórinn Fóstbræður

CREATIVE DIRECTOR:
Gunnar Helgason

TICKET PRICES:
Gold:          21.990 (limegreen on photo)
Premiumi:  19.990 (purple on photo)
A seat:       17.990 (red on photo)
B seat:       15.990 (blue on photo)
C seat:       13.990 (green on photo)
D seat:       11.990 (yellow on photo)
E seat:         8.990 (pink on photo)

Seatmap here

Almenn miðasala hefst 12. júní kl. 10
Forsala Senu Live fer fram 11. júní kl. 10 

Dagsetning

28. nóvember 2026

Staður

Eldborg Harpa

Miðaverð

Gull:     21.990 (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990 (rautt á mynd)
B sæti: 15.990 (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990 (gult á mynd)
E sæti:   8.990 (bleikt á mynd)

Hlekkir

Þú gætir haft áhuga á..