FOO FIGHTERS Í NÝJU-LAUGARDALSHÖLL 9. JÚNÍ 2027
SÉRSTAKIR GESTIR: THE HIVES
Ein stærsta rokkhljómsveit heims, Foo Fighters, hefur tónleikaferð sína TAKE COVER TOUR 2027 á Íslandi. Tónleikarnir fara fram í Nýju-Laugardalshöll þann 9. júní. The Hives hita upp og fleiri upphitunaratriði verða tilkynnt síðar.
Ferðinni lýkur á Croke Park í Dublin 18. september. Meðal viðkomustaða er Wembley Stadium í London, þar sem sveitin leikur tvö kvöld, 9. og 11. september.
„Það er ómögulegt annað en að hrífast af kraftinum á tónleikum Foo Fighters. Grípandi gítarriff og uppbyggjandi textar sameinast í þeirri tilfinningalegu útrás sem aðeins lifandi tónlist getur veitt. Það er auðvelt að sjá hvers vegna Foo Fighters hafa getið sér orð sem ein áreiðanlegasta tónleikasveit samtímans; tónleikarnir höfðu allt sem góðir tónleikar eiga að hafa.“ – Liverpool Echo
„Þrjár klukkustundir liðu á augabragði í linnulausri syrpu af smellum á yfirsnúningi.“ – The Times
ALGENGAR SPURNINGAR HÉR
FOO FIGHTERS
Foo Fighters luku nýverið Norður-Ameríkuhluta TAKE COVER-tónleikaferðarinnar 2026. Þar bauð sveitin upp á „þrjár klukkustundir af rokkbrjálæði og fögnuði“, eins og The New York Times orðaði það, fyrir stærstu áhorfendahópa sína til þessa í meðal annars Toronto, Chicago, Philadelphia og Washington DC.
Sveitin er nú á tónleikaferð um Ástralíu og Nýja-Sjáland. Sydney Morning Herald lofaði „hráa orkuna og ákefðina“ á tónleikunum í Sydney. Þar flutti sveitin einnig hið sjaldheyrða „Ballad of the Beaconsfield Miners“ til minningar um námumanninn Todd Russell frá Beaconsfield, sama dag og hann lést.
Á TAKE COVER-tónleikaferðinni 2027 munu Dave Grohl, Nate Mendel, Chris Shiflett, Pat Smear, Rami Jaffee og Ilan Rubin halda áfram að fara fram úr öllum væntingum með kraftmiklum rokkmaraþonum. Þriggja tíma tónleikar hafa einkennt ferðina, þar sem klassísk Foo Fighters-lög, sjaldheyrðari perlur og óvænt atriði mætast.
THE HIVES
Sænska rokksveitin The Hives er þekkt fyrir hrátt bílskúrsrokk og tryllta sviðsframkomu. Með hinn litríka Howlin’ Pelle Almqvist í fararbroddi hefur sveitin um árabil heillað rokkunnendur um allan heim.
Meðal þekktustu laga sveitarinnar eru „Hate to Say I Told You So“, „Main Offender“, „Walk Idiot Walk“ og „Tick Tick Boom“. Árið 2025 sendi sveitin frá sér plötuna „The Hives Forever Forever The Hives“.


