The Streets flytja hina áhrifamiklu plötu A Grand Don’t Come for Free í heild sinni í fyrsta sinn á sviði, og í seinni hluta tónleikanna má heyra dáðustu smellina frá ferlinum. Þeirra einstaka blanda af bresku hip-hop-i, bílskúrs- og rafrænni tónlist mun án efa njóta sín í botn á sviðinu í Eldborg.
Um The Streets
The Streets sló fyrst í gegn árið 2002 með plötunni Original Pirate Material, sem tilnefnd var til Mercury-verðlaunanna. Platan er talin ein áhrifamesta breska plata síðari tíma. Áhrifa hennar gætir enn í bresku tónlistarsenunni. Í kjölfarið fylgdu fjórar tilnefningar til BRIT-verðlauna, meðal annars fyrir plötu ársins og besta söngvara. Lagið „Dry Your Eyes“, af plötunni A Grand Don’t Come For Free (2005), hlaut Ivor Novello-verðlaun fyrir besta lag bæði tónlistar- og textalega, og sama ár hlaut Skinner BRIT-verðlaunin.
Síðan þá hefur The Streets gefið út fjölda platna, þar á meðal The Hardest Way to Make an Easy Living (2006), Everything Is Borrowed (2008), Computer and Blues (2011) og mixtape-plötuna None Of Us Are Getting Out of This Alive (2020). Skinner hefur einnig unnið með fremstu nöfnum breskrar tónlistar. Nöfn eins og Kano og Fred again.. til Greentea Peng, Giggs og Chris Lorenzo, með smellinum „Take Me As I Am“.
Undanfarin ár hefur hann, í gegnum útgáfuna Mike Skinner LTD, unnið með nýrri kynslóð listamanna á borð við FLOHIO, Ghetts og Grim Sickers.
Nýjasta plata hans, The Darker The Shadow, The Brighter The Light, markar endurkomu Skinners. Platan er heildstætt verk þar sem einkennandi lesnir textar mæta myndrænni frásögn. Platan tengist samnefndri kvikmynd sem hann leikstýrði sjálfur en þar fléttast saman myrkur stíll, elektrónísk tónlist og íhugul þemu um frægð, sjálfsmynd og tilveru.
Skinner er einstakur sviðslistamaður með mikla reynslu bæði sem DJ og flytjandi. Hann er þekktur fyrir kraftmikla nærveru á sviði og hæfileikann til að grípa áhorfendur. Hann gerir það jafnt í troðfullum kjöllurum eða á stærstu hátíðarsviðum á borð við Glastonbury. Hvort sem hann er í DJ-setti eða live flutningi, stýrir hann sviðinu með ómótstæðilegri nærveru og klassískri breskri kaldhæðni. Þegar The Streets tilkynnti endurkomutúr árið 2017 seldust miðar upp á innan við mínútu – skýr vitnisburður um áhrifin sem hann hefur haft á kynslóðir tónlistarfólks og áhorfenda.
Upprunalega gefin út árið 2004, er A Grand Don’t Come For Free er upprunalega gefin út árið 2004 en er enn ein mikilvægasta og áhrifamesta breska plata 21. aldarinnar. Hún fór beint á topp breska vinsældalistans, seldist í milljónum eintaka og skilaði tímamótalögum á borð við „Dry Your Eyes“, „Fit But You Know It“ og „Blinded By The Lights“.
Platan festi Skinner í sessi sem eina af frumlegustu röddum Bretlands. Platan inniheldur einstaka blöndu af húmor, brostnum hjörtum og hráum tilfinningum hversdagslífsins, sett fram á einstakan ljóðrænan hátt.


