Sértónleikar, eingöngu fyrir Ísland, laugardaginn 24. október í Höllinni!
Það eru ekki margir viðburðir sem fá rokkaðdáendur til að staldra við. En þegar Queens of the Stone Age mæta til landsins eftir 25 ára bið er von á alvöru tónleikum.
Það mætti segja að hér sé um að ræða langþráða endurfundi íslenskra rokkara við eina áhrifamestu rokksveit síðustu áratuga. Bandið hefur lengi viljað setja Ísland inn sem áfangastað á tónleikaferðum en ekki tekist. Þeir ákváðu að bíða ekki lengur og kýla á sérferð til Íslands. Þannig að hér er sannarlega um einstaka tónleika að ræða, settir sérstaklega upp fyrir Ísland og ekki partur af stærri túr.
QOTSA njóta sín best á sviðinu, eru þekktir fyrir magnaða tónleika og hafa aldrei verið betri. Það er því óhætt að lofa ógleymanlegu kvöldi.
Upphitun verður í höndum reykvísku sveitarinnar Virgin Orchestra sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu ár, bæði hér heima og erlendis.
Ekki missa af sérstökum Íslands tónleikum, með Queens of the Stone Age, í Höllinni!
Um Queens of the Stone Age
Queens of the Stone Age er skipuð þeim Joshua Homme, Troy Van Leeuwen, Michael Shuman, Dean Fertita og trommuleikaranum Jon Theodore. Á glæsilegum 30 ára ferli hefur sveitin skipað sér sess sem einkraftmesta og frumlegasta rödd rokksins. Krafturinn nýtur sín best á sviðinu, enda eru þeir þekktir fyrir að leggja allt í sölurnar á tónleikum sínum og hafa aldrei verið betri. Eins og NME orðaði það í nýlegri umfjöllun um Catacom túrinn þá eru þeir þessa dagana að “…ná nýjum hæðum!”.
QOTSA báðu sérstaklega um að fá að spila á Íslandi, mæta með gríðarlega orku og bestu lögin frá öllum ferlinum. Einstakt kvöld er í vændum.
Um Virgin Orchestra
Virgin Orchestra sækir innblástur í post-pönk, raftónlist, dreampop og hávaðarokk og fléttar saman í kraftmikinn og heillandi hljóm. Sveitina skipa þau Rún, Starri og Stefanía og hefur hún verið á mikilli siglingu undanfarin ár, bæði hér heima og erlendis, í kjölfar útgáfu Fragments árið 2023 og EP-plötunnar Let It Burn árið 2025.
Þau voru sérstaklega valin af QOTSA til að hita upp.


