Laufeyland opnar í Smáralind þriðjudaginn 10. mars.
Opnunartími verður alla daga frá kl. 12-20 fram að seinni tónleikunum 15. mars
Nánari dagskrá verður birt hér á næstu dögum.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Laufeyland er einstök Pop-up upplifun – innblásin af tónlist, fagurfræði og töfrum Laufeyjar.
Verslunin opnar þriðjudaginn 10. mars kl. 12 og verður opin alla daga frá kl. 12-20 fram að seinni tónleikum, sunnudaginn 15. mars.
Á staðnum verður fjölbreytt afþreying í boði alla daga t.d. gjafaleikir, lifandi tónlist og einnig verður Laufeyjar varningur til sölu. Nánari dagskrá tilkynnt fljótlega.
Laufeyjar upplifunarrýmið er staðsett rétt við Garðinn, nýju mathöllina í Smáralind sem hefur slegið í gegn. Laufeyjar Happy Hour verður í boði á nokkrum stöðum þar á milli kl. 15-17 alla vikuna.
Laufeyjar stemning verður í Smáralind alla vikuna fyrir tónleikana og geta viðskiptavinir sem versla fyrir 5.000 kr. eða meira í verslunum Smáralindar tekið þátt í léttum leik með vinningum að verðmæti 80.000 kr., þar á meðal eru Gull miðar á tónleikana.
Tónlist Laufeyjar mun hljóma í húsinu svo það verður því sannkölluð Laufeyjar upphitunarhátíð í Smáralind dagana 10.-15. mars!
UM TÓNLEIKANA
Tónleikarnir með Laufeyju fara fram í Kórnum 14. og 15. mars. Uppselt er 14. mars og fáir miðar eftir 15. mars.